06.08.26 - 23:23
Brynjar Ingi Erluson
Chavarria á leið til Chelsea - Gusto falur fyrir rétt verð

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Chelsea hefur náð samkomulagi við Rayo Vallecano um spænska vinstri bakvörðinn Pep Chavarria.
Rayo Vallecano hefur samþykkt 18 milljóna punda tilboð Chelsea í Chavarria.
Chelsea greiðir 16 milljónir strax en tvær milljónir til viðbótar geta bæst við í árangurstengdum greiðslum.
Chavarria heldur nú til Lundúna þar sem hann gengst undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir langtímasamning.
Bakvörðurinn er 28 ára gamall og hefur leikið með Rayo Vallecano undanfarin fjögur ár. Hann gegndi mikilvægu hlutverki þegar liðið komst í úrslit Sambandsdeildarinnar í vor.
Chavarria er ætlað að fylla skarðið sem Marc Cucurella skildi eftir sig. Cucurella gekk til liðs við Real Madrid fyrr í sumar eftir að hafa verið í hópi bestu bakvarða ensku úrvalsdeildarinnar undanfarin ár.
Gusto gæti farið
Þá skrifa enskir miðlar um að Chelsea sé alvarlega að íhuga að selja franska hægri bakvörðinn Malo Gusto frá félaginu fyrir lok gluggans.
Manchester City hefur mikinn áhuga á Gusto sem er verðmetinn á 75 milljónir punda, en félagið er ekki tilbúið að greiða það verð.
Gusto er 23 ára og hefur verið hjá Chelsea frá 2023. Hann var í franska landsliðinu sem hafnaði í 4. sæti heimsmeistaramótsins í sumar.

???????? Chelsea agree deal to sign Pep Chavarria from Rayo Vallecano, here we go!
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 6, 2026
Deal done for Spanish left back, €19m fixed fee plus €2m add-ons. Chavarria will now fly for medical and contract signing.
Club to club signatures happening tonight. pic.twitter.com/6FcyXAAtua