06.08.26 - 22:18
Brynjar Ingi Erluson
Enski deildabikarinn: Óvænt úrslit í Bristol

Mynd: Walsall

Mynd: Walsall
Bristol City 0 - 1 Walsall
0-1 Aaron Pressley ('47 )
0-1 Aaron Pressley ('47 )
B-deildarlið Bristol City er úr leik í enska deildabikarnum eftir óvænt 1-0 tap gegn D-deildarliði Walsall á Ashton Gate í kvöld.
Bristol City hafnaði í tólfta sæti B-deildarinnar á síðustu leiktíð en Walsall endaði í þrettánda sæti D-deildarinnar.
Gestirnir byrjuðu betur og Sam Tickle þurfti að taka á honum stóra sínum í marki Bristol City á 32. mínútu. Hann varði þá fjórum sinnum á skömmum tíma, fyrst skalla frá Aaron Pressley og síðan fráköst frá Pressley, Isaac Moore og Courtney Clarke.
Jed Ward var einnig í stuði í marki Walsall og varði vel frá Jed Wallace og Lorent Tolaj.
Sigurmarkið kom snemma í síðari hálfleik. Reece Smith sendi boltann fyrir frá vinstri inn á miðjan teiginn á Pressley sem skoraði, en þar átti Tickle líklega að gera betur er hann varði boltann aftur fyrir sig og í netið.
Bristol City sótti stíft á lokakaflanum en gestirnir vörðust af krafti og fögnuðu frábærum útisigri.
Dregið verður í aðra umferð deildabikarsins á mánudag en þá koma átta úrvalsdeildarlið inn í keppnina.

League Two's @WFCOfficial with the first shock of the round! ????#CarabaoCup | #EFLisBack pic.twitter.com/0kl4DO8kcZ
— Carabao Cup (@Carabao_Cup) August 6, 2026