Fotbolti.net
06.08.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Evrópa í dag - Tómas Bent mætir Benfica og FCK í Ungverjalandi

Tómas Bent og hans menn í Hearts heimsækja Benfica í Evrópudeildinni

Tómas Bent og hans menn í Hearts heimsækja Benfica í Evrópudeildinni

Canon

Mynd: Hearts/Skjáskot

Spilað er í 3. umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildar Evrópu í kvöld, en fjölmargar Íslendingar verða í eldlínunni.
Gísli Gottskálk Þórðarson og félagar hans í Lech Poznan mæta færeyska liðinu KÍ/Klaksvík klukkan 17:00 í Evrópudeildinni og þá mætast auðvitað Thun og Íslandsmeistarar Víkings klukkan 18:00.

Tómas Bent Magnússon verður með Hearts sem mætir Benfica í síðasta leiknum klukkan 19:00.

Í Sambandsdeildinni gætu margir Íslendingar komið við sögu. Eyþór Martin Björgólfsson er á mála hjá Motherwell sem heimsækir HJK Helsinki.

Rúnar Alex Rúnarsson, Viktor Bjarki Daðason og Gunnar Orri Olsen eru allir hjá FCK sem heimsækja Debrecen til Ungverjalands. Hjörtur Hermannsson og Kolbeinn Þórðarson verða með Gautaborg sem mætir Gent og þá er Kristian Nökkvi Hlynsson með Twente sem spilar við DAC.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson mun stýra NSÍ Runavík gegn svissneska liðinu Lugano. Alex Freyr Elísson er á mála hjá NSÍ.

Valsmenn mæta Nordsjælland á Hlíðarenda, en Skagamaðurinn Daníel Ingi Jóhannesson er samningsbundinn danska félaginu og þá verður Elías Rafn Ólafsson í marki Midtjylland sem spilar við Bohemians.

Leikir dagsins:

Evrópudeildin
15:00 KuPS - Universitatea Craiova
16:00 Jagiellonia - Rangers
16:00 Maccabi Tel Aviv - CSKA Sofia
17:00 Lincoln - Omonia
17:00 Hradec Kralove - Besiktas
17:00 Lech Poznan - KI Klaksvik
17:00 Salzburg - Pafos FC
17:45 PAOK - Anderlecht
18:00 Thun - Víkingur
19:00 Benfica - Hearts

Sambandsdeildin
15:00 Inter Turku - Vaduz
16:00 HJK Helsinki - Motherwell
16:00 Jablonec - Rigas FS
16:00 Noah - Sion
16:00 Paide - Rapid
16:30 Cluj - Tromso
17:00 Debrecen - FCK
17:00 Dynamo K. - Qarabag
17:00 Goteborg - Gent
17:00 Inter Escaldes - Flora
17:00 Rakow - Hammarby
17:00 Riga - Gyor
17:00 Sheriff - St. Gallen
17:00 Zalgiris - Hajduk Split
17:30 Beitar Jerusalem - Austria V
18:00 Ajax - Shelbourne
18:00 Hapoel Tel Aviv - Katowice
18:00 Twente - DAC
18:30 Borac BL - ML Vitebsk
18:30 Braga - Dinamo Minsk
18:30 Lugano - NSI Runavik
18:30 Valur - FC Nordsjaelland
18:45 Bohemians - Midtjylland
18:45 Rijeka - Ilves
19:00 Hibernian - Shkendija
19:00 Partizan - Tobol
19:00 SP Tre Fiori - Drita FC
Íslendingalið FCK spila við Debrecen

Íslendingalið FCK spila við Debrecen

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.