06.08.26 - 19:58
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin: Víkingar í erfiðri stöðu eftir tap í Sviss

Aron Elís Þrándarson í leiknum í kvöld

Mynd: EPA

Brighton Labeau fagnar marki sínu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Aron Elís Þrándarson í leiknum í kvöld

Mynd: EPA
Thun 3 - 0 Víkingur R.
1-0 Jan Bamert ('19 )
2-0 Brighton Labeau ('26 )
3-0 Fabio Saiz ('90 )
Lestu um leikinn
1-0 Jan Bamert ('19 )
2-0 Brighton Labeau ('26 )
3-0 Fabio Saiz ('90 )
Lestu um leikinn
Íslandsmeistarar Víkings töpuðu 3-0 fyrir Thun í fyrri leik liðanna í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í Sviss í kvöld.
Thun byrjaði af krafti og Nico Maier átti fyrstu tilraunina strax á fyrstu mínútu. Aron Snær Friðriksson, sem kom inn í lið Víkings með stuttum fyrirvara eftir að Ögmundur Kristinsson meiddist í upphitun, varði vel.
Víkingar tóku við sér næstu mínútur og komust í nokkrar ágætar stöður án þess þó að ógna marki heimamanna að ráði.
Thun náði síðan aftur tökum á leiknum. Aron Snær varði vel þegar boltinn féll fyrir leikmann heimamanna hægra megin í teignum en upp úr hornspyrnunni kom fyrsta markið.
Hornspyrnan var tekin stutt á Fabio Fehr sem sendi frábæran bolta inn í teiginn. Þar reis Jan Bamert hæst og stangaði boltann í vinstra hornið.
Heimamenn tvöfölduðu forystuna aðeins nokkrum mínútum síðar. Thun fékk aukaspyrnu vinstra megin, boltinn fór í gegnum allan pakkann og rataði til Brighton Labeau. Hann tók boltann niður með bringunni og þrumaði honum með ristinni í vinstra hornið.
Víkingar töldu sig hafa minnkað muninn á 32. mínútu. Stígur Diljan Þórðarson keyrði þá upp vinstra megin og lagði boltann snyrtilega í nærhornið.
VAR greip hins vegar inn í og markið var dæmt af vegna brots Arons Elís Þrándarsonar á Nicolas Burgy í aðdragandanum. Báðir tókust á en Aron átti síðasta orðið og dró Burgy niður.
Thun leiddi 2-0 í hálfleik og var forystan sanngjörn miðað við gang leiksins.
Víkingar byrjuðu síðari hálfleikinn ágætlega og Valdimar Þór Ingimundarson fékk gott færi hægra megin í teignum en skaut yfir.
Eftir það róaðist leikurinn töluvert og lítið var um opin færi. Meiðsli hafa herjað á leikmannahóp Víkings undanfarnar vikur og fór um menn þegar Aron Snær lagðist niður. Markvörðurinn harkaði þó af sér og kláraði leikinn.
Thun virtist sátt við stöðuna á meðan Víkingur reyndi að minnka forystuna niður. Valdimar Þór komst næst því þegar hann lét vaða fyrir utan teig en boltinn small í stönginni vinstra megin. Þá áttu þeir annað dauðafæri í uppbótartíma eftir hornspyrnu en markvörðurinn varði dauðafrían skalla Róberts Orra Þorkelssonar af stuttu færi áður en heimamenn hreinsuðu frá.
Grátlegt var fyrir Víkinga að ná ekki að minnka muninn á lokakaflanum og refsuðu Thun-menn með því að skora þriðja markið á síðustu sekúndu leiksins er Fabio Saiz fékk boltann út fyrir teiginn eftir hornspyrnu og skaut föstu skoti í gegnum pakkann og neðst í vinstra hornið.
Svissneska liðið fer með þriggja marka forystu til Íslands og þurfa Víkingar kraftaverk til að komast áfram í næstu umferð.
Sigurvegari einvígisins mætir Lech Poznan eða Klaksvik í umspili Evrópudeildarinnar. Tapliðið fer í umspil Sambandsdeildarinnar þar sem Borac eða Vitebsk bíður.