Fotbolti.net
06.08.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fyrirliði andstæðinga Vals er fyrrum leikmaður Fjölnis

Fyrirliði andstæðinga Vals er fyrrum leikmaður Fjölnis
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tobias Salquist er fyrirliði danska liðsins Nordsjælland sem komið er hingað til lands og spilar við Val á Hlíðarenda í kvöld. Liðin mætast í 3. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni.

Salquist er 31 árs miðvörður sem þekkir vel að spila á Íslandi því hann var leikmaður Fjölnis árið 2016.

Þá kom hann á láni frá Silkeborg og var lykilmaður í liði Fjölnis sem endaði í 4. sæti efstu deildar. Hann lék 21 deildarleik og skoraði tvö mörk. 4. sætið er besti árangur Fjölnis í sögu efstu deildar.

Salquist, Matin Lund Pedersen og Marcus Solberg komu til Fjölnis fyrir tímabilið 2016 og gerðu góða hluti. Eftir að hafa skorað níu deildarmörk fyrir Fjölni og hafa verið valinn í úrvalslið deildarinnar fór Martin Lund í Breiðablik. Solberg var í tvö tímabil hjá Fjölni og skoraði átta deildarmörk.

Salquist hélt ferli sínum í Danmörku áfram, fór svo til Belgíu, Noregs og Bandaríkjanna áður en hann samdi við Nordsjælland fyrir einu og hálfu ári síðan.

Hann er einn af fyrstu erlendu leikmönnunum sem komu upp í huga fréttamanns þegar hugurinn leitaði til manna sem komið hafa til Íslands og átt farsælan feril erlendis eftir það.
Tíu ár frá toppnum - Fjölnir ekki verið á verri stað í rúm 20 ár og fjárhagurinn í molum
TENGT EFNI

Tíu ár frá toppnum - Fjölnir ekki verið á verri stað í rúm 20 ár og fjárhagurinn í molum

Hjá Fjölni myndaði Salquist öflugt miðvarðapar með Daniel Ivanovski.

„Umgjörðin var þarna orðin eins og hjá toppklúbbi og það var rosa gaman að vinna í þannig umhverfi. Með þessu gátum við farið að sækja erlenda leikmenn en við fengum þrjá unga danska leikmenn til liðs við okkur ásamt landsliðsmanni frá Makedóníu sem styrktu liðið umtalsvert og í samblandi við að spila á uppöldum Fjölnisleikmönnum. Þannig eigum við besta tímabil í sögu Fjölnis en þá rétt missum við af Evrópusæti í lokaumferðinni," sagði Ágúst Gylfason í viðtali við Fótbolta.net á dögunum þegar hann rifjaði upp tímabilið 2016.

Leikur Vals og Nordsjælland hefst klukkan 18:30 og telja veðbankar að danska liðið muni vinna leikinn nokkuð þægilega.
Martin Lund Pedersen.

Martin Lund Pedersen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marcus Solberg og Tobias Salquist.

Marcus Solberg og Tobias Salquist.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ivanovski og Salquist.

Ivanovski og Salquist.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.