Fotbolti.net
06.08.26 - 23:05
Brynjar Ingi Erluson

Gæti verið á förum frá Englandsmeisturunum

Gæti verið á förum frá Englandsmeisturunum
Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Napoli hefur sett sig í samband við föruneyti Gabriel Jesus til að kanna möguleikann á að fá brasilíska framherjann frá Arsenal. Þetta kemur fram hjá Globo í Brasilíu.
Arsenal er tilbúið að leyfa Jesus að fara áður en félagaskiptaglugginn lokar en lán kemur ekki til greina.

Félagið vill fá að minnsta kosti 20 milljónir evra fyrir Brasilíumanninn sem er hjá sömu umboðsmannaskrifstofu og Max Allegri, þjálfari Napoli.

Jesus er 29 ára gamall og hefur verið hjá Arsenal frá árinu 2022 þegar hann kom frá Manchester City. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn og hefur hann aðeins leikið 54 leiki undanfarin tvö tímabil.

Hann skoraði þrjú deildarmörk á síðustu leiktíð þegar Arsenal varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.