06.08.26 - 18:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
GAIS hefur áhuga á Daniel Inga

Mynd: FC Nordsjælland

Spilaði með ÍA fyrir þremur árum síðan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: FC Nordsjælland
Sænska félagið GAIS hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net áhuga á því að fá Daniel Inga Jóhannesson í sínar raðir á láni frá Nordsjælland.
Daniel Ingi er staddur hér á landi, hann er í leikmannahópi Nordsjælland sem er að spila á móti Val í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Hann er 19 ára og kom til Nordsjælland frá uppeldisfélaginu ÍA sumarið 2023.
Hann hefur verið í hópi aðalliðsins í Evrópuleikjum en ekki í deildinni til þessa á tímabilinu.
Nordsjælland og GAIS mættust einmitt í síðustu umferð í Sambandsdeildinni og sló Nordsjælland lið GAIS úr leik með stórsigri í heimaleik sínum.

Daniel, sem á að baki 27 leiki og sjö mörk fyrir yngri landsliðin, kom við sögu í tveimur leikjum á síðasta tímabili og lagði upp sigurmarkið gegn Midtjylland í úrslitakeppninni. Í sumar lék hann svo í þremur æfingaleikjum með aðalliðinu.
Róbert Frosti Þorkelsson er leikmaður GAIS sem situr í 9. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar en 15 umferðir eru eftir af tímabilinu í Svíþjóð.
Fyrr í sumar reyndi GAIS að kaupa Óskar Borgþórsson af Víkingi en því tilboði var hafnað. Þá voru einnig fregnir af því að félagið hefði rætt við Jóhann Berg Guðmundsson sem er án félags.