Fotbolti.net
06.08.26 - 16:05
Kári Snorrason

Gísli Gotti á leið til Þýskalands

Á að baki 4 A-landsleiki.

Á að baki 4 A-landsleiki.

Canon

Mynd: EPA

Gísli Gottskálk Þórðarson er á leið til þýska félagsins St. Pauli á eins árs láni frá pólska félaginu Lech Poznan.

Pólskir miðlar greina frá tíðindunum og er St. Pauli er með ákvæði í samningnum sem gerir þeim kleift að kaupa Gísla að láninu loknu.
Félagið leikur í 2. Bundesliga en það féll úr efstu deild á síðustu leiktíð. Gísli er 21 árs gamall miðjumaður sem gekk í raðir Poznan fyrir um einu og hálfu ári síðan frá Víkingi.

Hann hefur verið óheppinn með meiðsli frá því að hann gekk í raðir liðsins en er nú að komast aftur á skrið. Alls á hann 34 leiki að baki fyrir pólska félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.