06.08.26 - 19:49
Brynjar Ingi Erluson
Gunnar Olsen þreytti frumraun sína með FCK og Jakob fagnaði sögulegum sigri

Gunnar Orri spilaði sinn fyrsta keppnisleik með aðalliði FCK

Mynd: FCK

Stjörnumaðurinn Gunnar Orri Olsen þreytti frumraun sína í keppnisleik með FCK er hann kom inn á sem varamaður á lokamínútunum í 3-0 sigri liðsins á Debrecen í 3. umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.
Gunnar Olsen hefur farið á kostum með yngri liðum FCK síðan hann kom til félagsins frá Stjörnunni fyrir tveimur árum.
Hinn 18 ára gamli Gunnar hefur æft með aðalliðinu í sumar og verið í leikmannahópnum í síðustu keppnisleikjum. Í kvöld fékk hann loksins tækifærið og þreytti frumraun sína.
Hann kom inn á á 90. mínútu þegar FCK tók stórt skref í átt að umspilinu. Rúnar Alex Rúnarsson sat allan tímann á varamannabekk liðsins.
Hjörtur Hermannsson og Kolbeinn Þórðarson voru báðir í byrjunarliði Gautaborgar sem tapaði 1-0 fyrir Gent á heimavelli.
Gísli Gottskálk Þórðarson var ekki í leikmannahópi Lech Poznan sem vann Klaksvik, 1-0, í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Gísli er á leið til St. Pauli á láni.
Jakob Gunnar Sigurðsson og félagar í Hillerod unnu síðan sögulegan 12-0 stórsigur á Vaeggerlose í danska bikarnum. Þetta er stærsti bikarsigur í sögu Hillerod.