Fotbolti.net
06.08.26 - 22:22
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeild kvenna: Markalaust í toppslagnum - ÍA skoraði fjögur á Króknum

Grótta er á toppnum með sex stiga forystu

Grótta er á toppnum með sex stiga forystu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kvennaboltinn
Tveir leikir fóru fram í 13. umferð Lengjudeildar kvenna í kvöld, en þar gerðu KR og Grótta jafntefli í toppslag deildarinnar á meðan Skagakonur unnu 4-2 sigur á Tindastól.
Grótta var með sex stiga forystu á toppnum fyrir leikinn en KR sat í öðru sæti.

Þetta var gullið tækifæri fyrir KR til að hleypa spennu í titilbaráttuna en hvorugu liðinu tókst að skora og markalaust jafntefli varð niðurstaðan.

Grótta er því áfram á toppnum með 29 stig. KRer í öðru sæti með 23 stig, þremur stigum á undan HK sem situr í því þriðja.

ÍA vann á meðan góðan 4-2 útisigur á Tindastóli á Sauðárkróksvelli.

Alexa Maletis skoraði tvö mörk á fimm mínútna kafla um miðjan fyrri hálfleikinn. Alliyah Monica Rowe bætti síðan þriðja markinu við á 38. mínútu.

Tindastóll vaknaði til lífsins í upphafi síðari hálfleiks. Rita Feist Lang og Cecilie Lillesoe Esbak Pedersen skoruðu með sjö mínútna millibili og minnkuðu muninn niður í eitt mark.

Skagakonur létu það ekki slá sig út af laginu og gerðu endanlega út um leikinn þegar um tuttugu mínútur voru eftir er Nadía Steinunn Elíasdóttir skoraði fjórða mark ÍA.

Flottur sigur hjá ÍA sem er í fjórða sæti með 18 stig. Tindastóll situr á botninum með aðeins þrjú stig og styttist óðfluga í að fall liðsins í 2. deild verði staðfest.

KR 0 - 0 Grótta

Tindastóll 2 - 4 ÍA
0-1 Alexa Maletis ('19 )
0-2 Alexa Maletis ('24 )
0-3 Alliyah Monica Rowe ('38 )
1-3 Rita Feist Lang ('51 )
2-3 Cecilie Lillesoe Esbak Pedersen ('58 )
2-4 Nadía Steinunn Elíasdóttir ('71 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Grótta13+1229
2KR12+1523
3HK12+420
4ÍA13+618
5Haukar11-318
6Keflavík11+1016
7Selfoss11+416
8FHL11+114
9Völsungur12-411
10Tindastóll12-453
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.