06.08.26 - 21:09
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeildin: ÍR-ingar unnu botnliðið

Emil Nói skoraði stórkostlegt mark fyrir ÍR

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

ÍR 3 - 2 Ægir
1-0 Bergvin Fannar Helgason ('15 )
1-1 Harley Bryn Willard ('51 )
2-1 Emil Nói Sigurhjartarson ('58 )
3-1 Óliver Andri Einarsson ('69 )
3-2 Alfredo Ivan Arguello Sanabria ('83 )
Lestu um leikinn

ÍR-ingar unnu 3-2 sigur á botnliði Ægis í 17. umferð Lengjudeildar karla á Þarfaþingsvellinum í Breiðholti í kvöld.
Ægismenn höfðu tapað átta af síðustu níu leikjum sínum fyrir kvöldið en ÍR-ingar voru komnir á ágætis skrið og taplausir í síðustu tveimur.
Bergvin Fannar Helgason kom ÍR yfir á 15. mínútu. Ágúst Unnar Kristinsson tók þá innkast á Bergvin sem var kominn inn í teiginn og smellti boltanum í netið úr þröngu færi.
ÍR-ingar voru mun sterkari í fyrri hálfleiknum en tókst ekki að bæta við öðru marki fyrir hlé.
Ægismenn refsuðu fyrir það á 51. mínútu. Harley Willard komst þá fram hjá varnarmanni ÍR og skoraði af öryggi.
Jöfnunarmarkið vakti heimamenn af værum blundi og aðeins sjö mínútum síðar kom Emil Nói Sigurhjartarson þeim aftur yfir með stórkostlegu skoti í slána og inn.
Óliver Andri Einarsson bætti þriðja markinu við ellefu mínútum síðar. Hann fékk boltann inni í teignum og skot hans fór af varnarmanni Ægis og í netið.
Gestirnir fengu vonarneista sjö mínútum fyrir leikslok þegar Alfredo Ivan Sanabria þrumaði boltanum í nærhornið.
Lengra komust Ægismenn þó ekki og ÍR-ingar fögnuðu öðrum sigri sínum í röð.
ÍR fer upp um eitt sæti og situr nú í því níunda með 19 stig. Ægir er áfram á botninum með átta stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Þróttur R. | 16 | +20 | 33 |
| 2 | Fylkir | 16 | +12 | 33 |
| 3 | Afturelding | 15 | +19 | 31 |
| 4 | HK | 16 | +9 | 28 |
| 5 | Njarðvík | 16 | +3 | 26 |
| 6 | Grótta | 15 | +4 | 25 |
| 7 | Vestri | 16 | -8 | 21 |
| 8 | Leiknir R. | 16 | -5 | 19 |
| 9 | ÍR | 17 | -8 | 19 |
| 10 | Grindavík | 16 | -4 | 17 |
| 11 | Völsungur | 16 | -17 | 11 |
| 12 | Ægir | 17 | -25 | 8 |