Fotbolti.net
06.08.26 - 18:56
Brynjar Ingi Erluson

Ólafur Íshólm framlengir í Breiðholti

Ólafur Íshólm framlengir í Breiðholti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Markvörðurinn Ólafur Íshólm Ólafsson hefur framlengt samning sinn við Leikni en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins á Instagram í dag.
Ólafur gekk til liðs við Leikni í fyrra eftir sjö tímabil hjá Fram.

Hann er uppalinn hjá Fylki og hóf þar meistaraflokksferilinn áður en hann færði sig yfir til Breiðabliks. Ólafur lék aðeins fáeina leiki með Blikum en fann sig síðar í stóru hlutverki hjá Fram.

Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Leikni í apríl á síðasta ári og hefur nú framlengt dvöl sína í efra-Breiðholti.

Ólafur hefur leikið fimmtán leiki í Lengjudeildinni á tímabilinu. Leiknir er í áttunda sæti með 19 stig.


Lengjudeild karla

#LiðLmunStig
1Afturelding22+3245
2Þróttur R.22+2543
3Fylkir22+1340
4HK22+1238
5Njarðvík22+938
6Leiknir R.22+128
7ÍR22-628
8Grótta22-727
9Vestri22-1327
10Völsungur22-1226
11Grindavík22-1025
12Ægir22-449
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.