06.08.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Osimhen gæti komið í stað Alvarez

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænska félaginu Atlético Madríd hefur boðist að fá nígeríska framherjann Victor Osimhen skyldi Julian Alvarez yfirgefa félagið fyrir gluggalok.
Sport greinir frá því að föruneyti Victor Osimhen hafi sett sig í samband við Atlético. Nígeríumaðurinn er sagður spenntur fyrir því að reyna fyrir sér á Spáni.
Launakröfur framherjans gætu þó sett strik í reikninginn. Þær eru sagðar mjög háar en það var einmitt það sem kom í veg fyrir að hann færi til Chelsea fyrir nokkrum árum.
Atlético mun ekki sækja nýjan framherja nema Julian Alvarez verði seldur. Arsenal, Barcelona og Real Madrid hafa öll verið orðuð við Argentínumanninn.
Stjórnarmenn Barcelona telja að áhugi Osimhen á Atlético geti hjálpað þeim í viðræðunum um Alvarez. Spánarmeistararnir gætu þannig fengið aukið svigrúm til að sækja Argentínumanninn ef Atlético finnur arftaka hans.
Osimhen er 27 ára gamall og hefur komið að 51 marki í 52 deildarleikjum með Galatasaray síðan hann gekk til liðs við félagið frá Napoli fyrir tveimur árum.