Fotbolti.net
06.08.26 - 00:24
Brynjar Ingi Erluson

Real Madrid býst við grænu ljósi frá Vini Jr

Real Madrid býst við grænu ljósi frá Vini Jr
Canon

Mynd: EPA

Stjórnarmenn Real Madrid eru fullvissir um að Vinicius Junior muni skrifa undir nýjan samning við félagið.
Englandsmeistarar Arsenal hafa verið í viðræðum við umboðsmenn Vini Jr og eru tilbúnir að bjóða Brasilíumanninum gull og græna skóga.

Núgildandi samningur hans við Real Madrid rennur út næsta sumar. Viðræður um framlengingu hafa ítrekað siglt í strand vegna launakrafna leikmannsins sem hefur farið fram á 30 milljónir evra á ári.

Nú hefur staðan hins vegar tekið jákvæða stefnu hjá Real Madrid því Vini Jr og umboðsmenn hans funduðu með stjórnarmönnum Real Madrid í dag þar sem spænska félagið lagði fram nýtt og endurbætt tilboð sem er sagt mun nær kröfum leikmannsins.

Fabrizio Romano segir Madrídinga fullvissa um að Vini Jr gefi grænt ljós á að ljúka viðræðunum og skrifi undir nýjan langtímasamning.

Jose Mourinho, nýr þjálfari Real Madrid, hefur einnig blandað sér í málið og reynt að sannfæra Brasilíumanninn um að vera áfram.

Arsenal bíður átekta og heldur í vonina um að viðræðurnar taki óvænta stefnu. Hafni Vini Jr nýja samningnum mun Real Madrid reyna að selja hann áður en glugginn lokar í stað þess að eiga á hættu að missa hann frítt næsta sumar.

Vini Jr er 26 ára gamall og kom frá Flamengo fyrir átta árum. Síðustu fimm ár hefur hann verið einn besti leikmaður heims þar sem hann hefur meðal annars þrisvar verið í liði ársins í Meistaradeildinni og fjórum sinnum í liði ársins í La Liga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.