Fotbolti.net
06.08.26 - 17:00
Kári Snorrason

„Salah er betri en þetta“

Vel tekið á móti Salah í Tyrklandi.

Vel tekið á móti Salah í Tyrklandi.

Canon

Mynd: EPA

Sparkspekingurinn Jamie Carragher segir Mohamed Salah vera of góðan til að spila í tyrknesku úrvalsdeildinni með Trabzonspor.

Egyptinn var fyrr í dag tilkynntur sem nýr leikmaður liðsins en hann kemur á frjálsri sölu eftir að hafa yfirgefið Liverpool fyrr í sumar.
„Ég trúði því aldrei að hann myndi fara til Sádi, því í fyrsta lagi er hann of góður fyrir það. Ég held að hann gæti spilað í Serie A. Tyrkland finnst mér vera of lágt stig,“ sagði Carragher við Football Ramble og hélt áfram.

„Hann hefði getað farið til AC Milan eða Juventus eða hvaða lið sem það gæti verið. Spila á San Siro, spila í stórum leikjum, spila áfram í Evrópukeppnum. Svo er það bara Tyrkland, Salah er betri en þetta,“ sagði sá enski að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.