Fotbolti.net
06.08.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Sancho að snúa aftur til Dortmund?

Sancho að snúa aftur til Dortmund?
Canon

Mynd: EPA

Þýska félagið Borussia Dortmund er í sambandi við umboðsmann enska vængmannsins Jadon Sancho varðandi mögulega endurkomu til félagsins.
Sky Sports greinir frá því að Dortmund hafi áhuga á að endurnýja kynnin við Jadon Sancho.

Sancho sló í gegn hjá Dortmund á árunum 2017 til 2021 en varð skugginn af sjálfum sér eftir að hann gekk til liðs við Manchester United.

Hann náði sér aldrei almennilega á strik hjá United og sneri aftur til Dortmund á láni árið 2024. Þar sýndi hann gamla takta á köflum og hjálpaði liðinu að komast í úrslit Meistaradeildarinnar áður en hann hélt aftur til Manchester.

Sancho hefur leikið með Chelsea og Aston Villa á láni undanfarin tvö tímabil án þess að finna sitt besta form. Samningur hans við United rann út í sumar og er hann því laus allra mála.

Dortmund er eitt margra félaga sem hafa áhuga á Englendingnum. Sancho hefur þegar náð samkomulagi um kaup og kjör við nokkur félög í Evrópu og Mið-Austurlöndum en hefur ekki ákveðið hvert hann fer.

Hinn 25 ára gamli Sancho vill skoða alla kosti áður en hann tekur lokaákvörðun. Endurkoma til Dortmund væri skrifað í skýin og ákveðinn þægindarammi fyrir hann til að koma sér aftur á rétta braut, en það verður að fá að koma betur í ljós á næstu vikum hva hann gerir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.