06.08.26 - 11:09
Innkastið
„Versta við Blika að það er ekki skemmtilegt að horfa á þá“

Breiðablik tapaði fyrir Þór í vikunni.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik tapaði 1-0 fyrir Þór í Bestu deildinni í vikunni og í Innkastinu var talað um að liðið virki andlaust og áhugalaust.
„Blikar eru einhvern veginn fastir milli skips og bryggju og lítil gulrót fyrir þá. Þeir virkuðu ekki mjög áhugasamir í þessum leik. Hausinn virðist ekkert fastur á verkefninu," segir Elvar Geir í Innkastinu.

Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 Breiðablik
„Þeir eru ekki í sömu deild og aðrir, þeir eru í 'fjórða sætis deildinni' og eru ekki að fara þaðan, það er eiginlega ekki fræðilegur séns," segir Haraldur Örn í þættinum.
Ógeðslega flatt
„Ef maður ætti að lýsa þessu tímabili hjá Blikum í einu orði þá er það flatt. Það er ógeðslega flatt. Versta við þetta lið er að það er ekki nægilega skemmtilegt að horfa á þá. Ég horfi á deildina og botna eiginlega ekki í því af hverju þeir eru með öll þessi stig því mér finnst þeir ekki hafa verið neitt góðir í sumar," segir Valur Gunnarsson og Elvar bætir við:
„Blikar eru þannig klúbbur að það er ekki bara horft í stigasöfnunina, þeir vilja spila flottan fótbolta og að það sé einkenni sitt. Þeir eiga að vera með miklu hærra skemmtanagildi en þeir hafa sýnt á þessu tímabili. Þegar maður horfir á einstaklingana þá á að vera skemmtanagildi í þessum leikmönnum."
Ömurlegur fótbolti
Í þættinum var rætt um færslu sem Hilmar Jökull, einn þekktasti stuðningsmaður Breiðabliks, skrifaði á X samfélagsmiðilinn. Þar segir hann Ólaf Inga Skúlason þjálfara liðsins þurfa að rýna í stöðuna.
„Ömurlegur fótbolti og Ólafur Ingi þarf að fara að horfa í spegil og hugsa hvort þetta sé það sem hann vill bjóða upp á," skrifaði Hilmar.
Breiðablik mætir Aftureldingu í bikarúrslitaleiknum 11. september og finnst mörgum eins og hann sé það eina sem liðið sé að bíða eftir.
„Þessi bikarúrslitaleikur er það eina sem þeir hafa að hlakka til. Það þarf að berja það inn í hausinn á þeim að þeir þurfa að spila eins og menn í deildinni," segir Valur.

Innkastið - Norður-kóreskir tilburðir á Akureyri
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 17 | +42 | 44 |
| 2 | Fram | 17 | +14 | 37 |
| 3 | KR | 17 | +22 | 36 |
| 4 | Breiðablik | 17 | +8 | 29 |
| 5 | Keflavík | 17 | -5 | 22 |
| 6 | Valur | 17 | -7 | 19 |
| 7 | ÍA | 17 | -8 | 19 |
| 8 | Stjarnan | 17 | -11 | 18 |
| 9 | ÍBV | 17 | -9 | 16 |
| 10 | KA | 17 | -11 | 15 |
| 11 | Þór | 17 | -24 | 15 |
| 12 | FH | 17 | -11 | 14 |