Bjarni Jó: Grindavík nýtti sín færi en við ekki
Auglýsing

Bjarni Jóhannsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Jóhannsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindvík vann KA 4-1 í dag. Bjarni Jóhannsson þjálfari KA segir muninn á liðunum hafa verið sá að Grindvík hafi nýtt sín færi en það gerði KA ekki.
,,Saga okkar í sumar. Ég tel okkur svikna um vítaspyrnu í byrjun leiks. Hreinlega rangt mat dómara, en ég hef svosem séð það verra í þeim efnunum.
„Síðan eigum við bara mjög slakan kafla í fyrri hálfleik, sem Grindvíkingarnir nýttu sér ágætlega og skoruðu tvö mörk.“
„Eftir það þá vænkaðist hagur okkur og í seinni hálfleik í stöðunni 2-1 fannst mér við vera á leiðinni að jafna leikinn.“
„Svo er okkur refsað grimmilega í tvígang fyrir einstaklingsmistök. Það má segja að munurinn á liðunum í dag var einfaldlega sá að þeir nýttu færin sín við ekki.“
„Við gáfumst ekki upp í stöðunni 2-0 og vorum að spila lungan úr leiknum ágætlega. En okkur var refsað grimmilega fyrir þessi mistök og síðan eigum við fín fær. Á meðan að við skutum beint á markmanninn, þá settu þeir hann í vinklana.\"

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér að ofan.