Fotbolti.net
06.09.26 - 12:59
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Skrautlegt sjálfsmark í fjögurra marka jafntefli

Jackson Tchatchoua gerði glórulaust sjálfsmark

Jackson Tchatchoua gerði glórulaust sjálfsmark

Canon

Mynd: EPA

Birmingham 2 - 2 Wolves
0-1 Fer Lopez ('3 )
1-1 Jay Stansfield ('22 )
1-2 Ladislav Krejci ('31 )
2-2 Jackson Tchatchoua ('36 , sjálfsmark)
Birmingham City og Wolves gerðu 2-2 jafntefli í fjörugum leik í fimmtu umferð ensku B-deildarinnar á St. Andrew's í dag. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik.

Gestirnir þurftu aðeins þrjár mínútur til að komast yfir. Rodrigo Gomes fékk boltann hægra megin í teignum og lagði hann hárnákvæmt fyrir Fernando Lopez sem skoraði í autt markið.

Jay Stansfield jafnaði fyrir Birmingham á 22. mínútu. Patrick Roberts átti þá fyrirgjöf með innsveiflu úr djúpinu og Stansfield hamraði skoppandi boltann í netið.

Úlfarnir náðu aftur forystunni á 31. mínútu þegar Ladislav Krejci stangaði hornspyrnu Andre í netið. Sú forysta entist aðeins í fimm mínútur en þá varð kamerúnski bakvörðurinn Jackson Tchatchoua fyrir því óláni að skora vandræðalegt sjálfsmark.

Tchatchoua var einn og óvaldaður þegar langur bolti barst fram völlinn og hafði nægan tíma til að hreinsa. Hann ákvað hins vegar að lyfta boltanum aftur á Jose Sa sem náði ekki til hans og horfði á eftir honum skoppa í netið. Stórfurðulegt mark og staðan orðin 2-2.

Birmingham var nálægt því að komast yfir hálftíma fyrir leikslok þegar skalli Phil Neumann fór af Tchatchoua og í þverslána. Skömmu síðar vildu heimamenn fá vítaspyrnu þegar Andre tók August Priske niður í teignum en ekkert var dæmt.

Heimamenn voru líklegri til að taka öll stigin, fyrir utan eitt færi sem Adam Armstrong fékk undir lokin, en náðu ekki að finna sigurmarkið. Úlfarnir geta því betur við unað með jafnteflið og eru í 9. sæti með átta stig. Birmingham er sæti neðar með sjö stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.