Fotbolti.net
06.09.26 - 20:10
Ívan Guðjón Baldursson

Fjórði sigurinn í röð hjá Hearts

Fjórði sigurinn í röð hjá Hearts
Canon

Mynd: Hearts

Íslendingaleikjum dagsins er lokið og er helst að frétta að Tómas Bent Magnússon lék allan leikinn í fjórða sigri Hearts í röð í efstu deild skoska boltans.
Tómas Bent, sem gekk til liðs við Hearts í fyrrasumar, var eftirsóttur í sumar en varð að lokum eftir hjá Hearts sem reyndist spútnik lið síðustu leiktíðar í Skotlandi.

Tómas og félagar voru hársbreidd frá því að vinna Skotlandsmeistaratitilinn afar óvænt en tókst ekki eftir dramatískan lokaleik gegn Celtic. Tómas missti af stórum hluta tímabilsins vegna meiðsla en virðist vera í byrjunarliðsáformum Wouter Vrancken á tímabilinu. Vrancken tók við þjálfarastarfinu af Derek McInnes eftir að sá síðarnefndi hætti hjá Hearts í sumar til að taka við Rangers.

Hearts byrjaði nýtt tímabil á tapi gegn Aberdeen en hefur síðan þá unnið fjóra leiki í röð og situr í öðru sæti deildarinnar, með 12 stig eftir 5 umferðir - þremur stigum á eftir Celtic sem er með fullt hús stiga. Hearts lenti undir á heimavelli gegn Dundee FC í dag og náði að snúa stöðunni við á lokakaflanum, lokatölur 2-1.

Logi Tómasson lék allan leikinn í vinstri bakverði hjá Samsunspor sem tapaði gegn Kocaelispor í efstu deild í Tyrklandi. Samsunspor var sterkari aðilinn í dag en nýtti ekki færin sín. Logi og félagar eru með fjögur stig eftir fjórar umferðir.

Í norska boltanum lék Júlíus Mar Júlíusson allan tímann í sigri Kristiansund gegn Tromsö. Júlíus Mar lék í hjarta varnarinnar í gríðarlega dýrmætum og óvæntum sigri.

Kristiansund vippar sér úr fallsæti með sigrinum og er með 19 stig eftir 19 umferðir. Tromsö er í þriðja sæti með 35 stig, níu stigum frá toppbaráttunni.

Kristófer Jónsson var þá í byrjunarliði í sigri Reggiana í ítölsku C-deildinni og er liðið með sjö stig eftir þrjár fyrstu umferðir tímabilsins.

Í Belgíu var Patrik Sigurður Gunnarsson á bekknum sem varamarkvörður Kortrijk í tapi á heimavelli gegn Waregem. Kortrijk er án stiga eftir fimm fyrstu umferðirnar á nýju tímabili.

Þá sat Sindri Kristinn Ólafsson á bekknum er Vasalund tapaði heimaleik í þriðju efstu deild í Svíþjóð og að lokum Sverrir Ingi Ingason ekki í hóp vegna meiðsla er Panathinaikos fór illa með PAOK í stórleik í gríska boltanum.

Panathinaikos er með sex stig eftir tvær umferðir.

Hearts 2 - 1 Dundee FC

Kocaelispor 1 - 0 Samsunspor

Kristiansund 2 - 0 Tromsö

Reggiana 3 - 1 Vado

Kortrijk 0 - 2 Waregem

Vasalund 2 - 3 Enköping

Panathinaikos 3 - 0 PAOK
Fjórði sigurinn í röð hjá Hearts
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjórði sigurinn í röð hjá Hearts
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fjórði sigurinn í röð hjá Hearts
Canon

Mynd: Reggiana

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.