Fotbolti.net
06.09.26 - 20:51
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ítalía: Dramatískt jöfnunarmark í stórleiknum

Ítalía: Dramatískt jöfnunarmark í stórleiknum
Canon

Mynd: EPA

Tveimur síðustu leikjum dagsins er lokið í ítölsku deildinni þar sem Juventus náði að gera dramatískt jöfnunarmark seint í stórleik dagsins gegn AC Milan.
Juventus var sterkari aðilinn í nokkuð tíðindalitlum leik en tókst ekki að skora framhjá Mike Maignan sem átti góðan leik.

Lærlingar Rúben Amorim í liði Milan sköpuðu lítið sem ekkert en nítján ára gamall Alphadjo Cisse kom inn af bekknum og skoraði laglegt mark eftir frábært einstaklingsframtak. Hann gerði vel að taka stjórn á boltanum eftir sendingu frá Samuel Chukwueze, leika á varnarmann og skora framhjá Guglielmo Vicario með góðu skoti sem fór í gegnum lappir Pierre Kalulu.

Heimamenn sköpuðu nokkur fín marktækifæri en Maignan stóð sig vel á milli stanganna og tókst þeim ekki að jafna fyrr en í uppbótartíma, þegar varnarmaðurinn Federico Gatti stangaði fyrirgjöf Teun Koopmeiners í netið.

Varamennirnir björguðu þannig stigi fyrir Juventus, sem er með sjö stig eftir þrjár umferðir líkt og AC Milan.

Fyrr í dag áttust Bologna og Sassuolo við í spennandi slag. Gestirnir frá Sassuolo náðu forystunni í tvígang en Bologna jafnaði í bæði skiptin svo lokatölur urðu 2-2 eftir opinn og skemmtilegan leik.

Sassuolo er með fjögur stig eftir þrjár umferðir en þetta er fyrsta stigið sem Bologna nælir sér í.

Juventus 1 - 1 Milan
0-1 Alphadjo Cisse ('68)
1-1 Federico Gatti ('92)

Bologna 2 - 2 Sassuolo
0-1 Josh Doig ('19)
1-1 Roberto Piccoli ('50)
1-2 Vasilije Adzic ('56)
2-2 Artem Dovbyk ('91)
Ítalía: Dramatískt jöfnunarmark í stórleiknum
Canon

Mynd: EPA

Ítalía: Dramatískt jöfnunarmark í stórleiknum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.