Fotbolti.net
06.09.26 - 21:06
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu atvikið: Fékk gult spjald fyrir hættulegt brot

Leikmenn Ajax brugðust illa við og slapp Ruben van Bommel með gult spjald.

Leikmenn Ajax brugðust illa við og slapp Ruben van Bommel með gult spjald.

Canon

Mynd: EPA

Ajax og PSV Eindhoven áttust við í stórleik í hollenska boltanum í dag og höfðu gestirnir í liði PSV betur.
Staðan var 1-2 fyrir PSV þegar kantmaðurinn knái Ruben van Bommel gerðist sekur um ljótt brot á lokakaflanum.

Ruben sem er sonur Mark van Bommel, fyrrum landsliðsmanns Hollands og núverandi landsliðsþjálfara Belgíu, var heppinn að fá ekki að líta rautt spjald þegar hann fór af öllu afli í skallabolta við andstæðing sinn.

Van Bommel kom á blindu hliðina hjá Aaron Bouwman og fór með öxlina í andlitið á honum af miklum krafti, sem endaði illa. Bouwman þurfti að yfirgefa leikvanginn í sjúkrabíl.

Talið er að hann verði frá keppni í að minnsta kosti mánuð eftir að hafa meitt sig á hálsi og orðið fyrir smávægilegum skaða á lunga.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.