Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 06. október 2022 22:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arteta: Einfaldir hlutir sem voru að mistakast
Mynd: EPA

Mikel Arteta stjóri Arsenal var ánægður með 3-0 sigur liðsins gegn Bodö/Glimt í kvöld.


Hann gerði átta breytingar á byrjunarliðinu frá Lundúnarslagnum um síðustu helgi. Nokkrir leikmenn sem hafa fengið fá tækifæri sem spiluðu í kvöld.

„Það vantaði aðeins upp á tenginguna milli leikmanna. Einfaldir hlutir sem voru að mistakast. Það eru leikmenn sem hafa ekki spilað margar mínútur og það sást vel," sagði Arteta.

Eddie Nketiah skoraði eitt marka liðsins í kvöld en hann er kominn með tvö mörk í tveimur leikjum í Evrópudeildinni. Hann fær hins vegar lítið að spila í deildinni þar sem Gabriel Jesus fer á kostum.

„Það er gaman að vinna tvo leiki og skora tvö mörk. Ég reyni að halda mínu áfram að gera það sem ég get að hjálpa liðinu og halda áfram að skora," sagði Nketiah.


Athugasemdir
banner
banner
banner