Fotbolti.net
06.10.26 - 13:00
Kári Snorrason

Kane getur jafnað leikjametið í kvöld - Sá besti í sögu Englands?

Getur spilað sinn 125. landsleik í kvöld.

Getur spilað sinn 125. landsleik í kvöld.

Canon

Mynd: EPA

Harry Kane getur jafnað landsleikjamet Peter Shilton þegar England tekur á móti Tékklandi á Wembley í A-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld.

Komi Kane við sögu verður þetta hans 125. landsleikur fyrir England og þar með jafnar hann Shilton. Kane er markahæsti leikmaður í sögu enska landsliðsins en hann hefur skorað 89 mörk í 124 landsleikjum.
Tuchel: Munum aldrei finna annan Harry Kane
TENGT EFNI

Tuchel: Munum aldrei finna annan Harry Kane

Enskir fjölmiðlar hafa fjallað mikið um mögulegt met Kane í aðdraganda leiksins og um leið velt því upp hvort hann geti talist besti landsliðsmaður Englands frá upphafi, þrátt fyrir að hafa aldrei unnið stórmót með liðinu.

Í könnun BBC þar sem lesendur voru spurðir hver væri besti landsliðsmaður Englands frá upphafi fékk Kane flest atkvæði, eða 24 prósent.

Næstir þar á eftir eru Bobby Charlton (23%), Bobby Moore (22%), Wayne Rooney (13%) og Gary Lineker (10%).
Shilton hefur átt metið einn í rúm 37 ár.

Shilton hefur átt metið einn í rúm 37 ár.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.