01.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tuchel: Munum aldrei finna annan Harry Kane

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englendinga er mjög hrifinn af landsliðsfyrirliðanum Harry Kane sem er meðal bestu fótboltamanna heims um þessar mundir.

TENGT EFNI
Kane á skilið að fá Gullboltann
Kane bætti ýmis met þegar hann skoraði 61 mark í 51 leik með FC Bayern á síðustu leiktíð, auk þess að raða inn mörkum með enska landsliðinu. Hann innsiglaði sigur Englands gegn Tékklandi í síðustu umferð í Þjóðadeildinni og er aðeins tveimur leikjum frá því að verða sá leikjahæsti í landsliðssögunni. Kane hefur spilað 123 leiki, tveimur minna heldur en Peter Shilton lék á árunum 1970 til 1990.
Kane er í harðri baráttu um Ballon d'Or verðlaunin í ár enda skoraði hann 73 mörk á síðustu leiktíð þegar landsliðið er talið með.
Hann er 33 ára gamall og var Tuchel spurður hvaða leikmaður gæti tekið við keflinu af Kane þegar hann leggur landsliðsskóna á hilluna.
„Í fyrsta lagi þá munum við munum aldrei finna annan Harry Kane. Hann er einstakur leikmaður, auk þess að vera ótrúlega vinnusamur og frábær í að klára færi. Hann er fullkominn leikmaður. Þegar við verðum án hans munum við þurfa að leita að öðrum lausnum, við kláruðum til dæmis síðasta leik með Jude Bellingham uppi á topp," segir Tuchel.
„Það mun einhver taka við af Harry en hann verður ekki sami leikmaður. Við munum finna lausn á því þegar nær dregur, en hver veit hvenær það verður. Kannski spilar Harry áfram fyrir landsliðið næstu tíu árin, það er aldrei að vita."
Eins og staðan er í dag hefur Tuchel notað leikmenn á borð við Ollie Watkins, Ivan Toney og Dominic Calvert-Lewin til að fylla í skarðið fyrir Kane í fremstu víglínu og þess má geta að Liam Delap er eini núverandi enski framherjinn undir 27 ára aldri sem hefur skorað Meistaradeildarmark á ferlinum.
„Mér líkar vel við Jude í hlutverki níu. Hann getur haft mikil áhrif á leikinn úr þeirri stöðu og ég tel að líkamsburðir hans geti nýst vel. Við fundum þannig séð nýtt hlutverk fyrir hann í síðasta leik þegar hann spilaði eins og tía. Við erum líka að reyna að láta Jude og Harry spila nær hvorum öðrum til að skapa meiri hættu í sóknarleiknum.
„Jude er fæddur markaskorari og gæti gert frábæra hluti í fremstu víglínu."