05.10.26 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Jesus: Ronaldo bjó til úlfalda úr mýflugu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Jorge Jesus landsliðsþjálfari Portúgal hefur verið duglegur að svara spurningum varðandi Cristiano Ronaldo eftir að stórstjarnan fór í fýlu og yfirgaf landsliðsbúðir Portúgal í síðustu viku.

TENGT EFNI
Jesus: Get ekki hunsað þessa umræðu um Ronaldo
Ronaldo átti þátt í að sannfæra portúgalska fótboltasambandið um að ræða Jesus til starfa eftir að hafa leikið undir hans stjórn hjá Al-Nassr á síðustu leiktíð, en leið svo eins og Jesus hafi svikið sig og vanvirt í Noregi.
Ronaldo sat á bekknum og bað þjálfarinn hann um að hita upp, sem hann gerði. Ronaldo hitaði upp í 20 til 30 mínútur en var aldrei skipt inn á völlinn. Þetta tók Ronaldo mjög illa í og yfirgaf svo landsliðsbúðirnar í kjölfar fréttamannafunds Jorge Jesus.
Nú virðist málið þó vera leyst eftir að Ronaldo ræddi við forseta portúgalska fótboltasambandsins og Jesus.
„Ég mun kalla Cristiano Ronaldo upp fyrir næsta landsliðsverkefni ef hann vill snúa aftur. Þetta er hans ákvörðun. Ef hann er að spila með Al-Nassr þá er ég tilbúinn að nota hann í landsliðinu," sagði Jesus eftir sigurinn í seinni leiknum gegn Noregi um helgina og hélt svo áfram.
„Að mínu mati er óréttlátt að halda eins árs vináttu yfir höfðinu á einhverjum út af skrýtnum aðstæðum sem hafa skapast," sagði Jesus, en hann og Ronaldo þekktust ekki mikið áður en Jesus var ráðinn sem aðalþjálfari Al-Nassr í júlí í fyrra.
„Þetta er mál bara útaf því að þetta er hann. Þetta er bara útaf stöðu hans sem goðsögn, hann er helsta tákn landsliðsins. Það er mjög eðlilegt að fótboltamenn hiti upp á hliðarlínunni án þess að koma svo inn af bekknum, hér er búið að búa til úlfalda úr mýflugu.
„Hversu margir leikmenn hituðu upp í dag án þess að vera skipt inn á völlinn? Hversu margir? Mun einhver þeirra vera til vandræða út af því? Nei."