Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 07. janúar 2021 15:00
Magnús Már Einarsson
Pogba: Verðum klárlega að gera betur
Mynd: Getty Images
Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, segir að smáatriði hafi orðið til þess að liðið tapaði 2-0 gegn Manchester City í undanúrslitum enska deildabikarsins í gærkvöldi.

„Auðvitað er þetta svekkjandi því að þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist gegn City heima," sagði Pogba en United tapaði einnig í undanúrslitum deildabikarsins gegn Manchester City í fyrra.

„Við erum svekktir yfir úrslitunum og að fá tvö mörk á okkur eftir föst leikatriði. Þetta getur farið í báðar áttir og við töpuðum í dag (í gær)."

„Það er mjög pirrandi að tapa því að það er bikar í boði og við verðum að gera betur. Við verðum klárlega að gera betur."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner