Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 07. janúar 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland um helgina - Boltinn byrjar að rúlla
Víkingur á leik á morgun.
Víkingur á leik á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA spilar við Stjörnuna
ÍA spilar við Stjörnuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski boltinn byrjar að rúlla af fullum krafti um helgina en fyrstu leikir í Fótbolta.net mótinu, Reykjavíkurmótinu og Faxaflóamótinu fara fram um helgina.

Allt byrjar þetta í kvöld á leik Aftureldingu og KV í B-deild Fótbolta.net mótsins en leikurinn er á Fagverksvellinum í Varmá klukkan 18:15.

Á morgun er spilað í bæði A- og B-deild mótsins en þá fer Reykjavíkurmótið einnig af stað. Valur mætir Fjölni á meðan Fylkir spilar við Íslands- og bikarmeistara Víkings R. Fram mætir KR í kvennaflokki.

Í A-deild Fótbolta.net mótsins spilar Breiðablik við Keflavík. ÍA og Stjarnan eigast við í Akraneshöllinni og Leiknir fer í heimsókn í Kórinn og spilar við HK. Leik FH og ÍBV var frestað.

Kjarnafæðismótið verður einnig á dagskrá og Faxaflóamót kvenna en hægt er að sjá alla leiki helgarinnar hér fyrir neðan.

Leikir helgarinnar:

föstudagur 7. janúar

Fótbolta.net mótið - B-deild, riðill 2
18:15 Afturelding-KV (Fagverksvöllurinn Varmá)

laugardagur 8. janúar

Fótbolta.net mótið - A-deild, riðill 1
11:30 HK-Leiknir R. (Kórinn)
13:00 Breiðablik-Keflavík (Kópavogsvöllur)

Fótbolta.net mótið - A-deild, riðill 2
12:00 ÍA-Stjarnan (Akraneshöllin)

Fótbolta.net mótið - B-deild, riðill 1
13:30 Njarðvík-Þróttur V. (Nettóhöllin-gervigras)
14:00 Kórdrengir-Selfoss (Skessan)

Reykjavíkurmót karla - A-riðill
12:00 Valur-Fjölnir (Origo völlurinn)
14:00 Víkingur R.-Fylkir (Víkingsvöllur)

Reykjavíkurmót kvenna - A-riðill
14:00 Fram-KR (Framvöllur)

Kjarnafæðismótið - A-deild, riðill 1
17:00 Völsungur-Þór 2 (Boginn)

Faxaflóamót kvenna - A-riðill
14:00 Stjarnan-Keflavík (Samsungvöllurinn)
16:15 Haukar-Afturelding (Skessan)

sunnudagur 9. janúar

Kjarnafæðismótið - A-deild, riðill 2
12:00 Þór-Dalvík/Reynir (Boginn)
Athugasemdir
banner
banner