Fotbolti.net
14.06.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Alex Freyr lagði upp og Brenna skoraði

Alex Freyr lagði upp og Brenna skoraði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum gærdagsins sem fóru fram erlendis, þar sem Alex Freyr Elísson var í byrjunarliðinu hjá NSÍ Runavík og lagði upp annað mark leiksins í 3-0 sigri.
Runavík er á toppi færeysku deildarinnar með 29 stig eftir 13 umferðir, þremur stigum fyrir ofan KÍ frá Klakksvík sem á leik til góða.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson er aðalþjálfari NSÍ.

Í kvennaboltanum hafði Brann betur gegn Vålerenga er liðin mættust í Íslendingaslag í efstu deild í Noregi.

Brenna Lovera skoraði fyrsta mark leiksins í 0-3 sigri Brann, en Diljá Ýr Zomers lék fyrstu klukkustundina fyrir sigurliðið og var Brenna tekin útaf tíu mínútum síðar.

Arna Eiríksdóttir og Sædís Rún Heiðarsdóttir voru báðar í byrjunarliði Vålerenga og fengu að spila fyrstu 80 mínúturnar í tapinu.

Brann er að reyna að stinga af í titilbaráttunni. Liðið er með 31 stig eftir 11 umferðir, með níu stiga forystu á Álasund sem á leik til góða. Valerenga er í fjórða sæti með 19 stig eftir 11 umferðir.

Í sænska boltanum var Heiða Ragney Viðarsdóttir í byrjunarliði Eskilstuna sem gerði jafntefli við Malmö á heimavelli, lokatölur 1-1.

Heiða lék fyrstu 80 mínútur leiksins og er Eskilstuna í efri hluta deildarinnar með 14 stig eftir 9 umferðir, einu stigi á eftir Malmö.

NSÍ Runavík 3 - 0 B36

Brann 0 - 3 Valerenga

Eskilstuna 1 - 1 Malmö
Alex Freyr lagði upp og Brenna skoraði
Canon

Mynd: Hrefna Morthens

Alex Freyr lagði upp og Brenna skoraði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.