Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 07. febrúar 2021 16:35
Victor Pálsson
Ítalía: Emil inn fyrir Ronaldo í sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Hallfreðsson byrjaði leik Padova á varamannabekknum í dag er liðið spilaði við Fermana á heimavelli á Ítalíu.

Padova er eitt besta lið C-deildarinnar á Ítalíu og eftir 1-0 sigur í dag situr liðið í öðru sæti deildarinnar.

Aðeins Sudtirol hefur gert betur á tímabilinu og er með 47 stig á toppnum. Padova á leik til góða og er með betri markatölu.

Emil fékk ekki mikið að spila í dag en hann kom inná fyrir mann að nafni Ronaldo þegar fimm mínútur voru eftir.

Ronaldo kemur frá Brasilíu og hefur spilað með Padova undanfarið ár en var áður hjá Novara, Salernitana og Empoli svo eitthvað sé nefnt.

Eina mark leiksins kom eftir 19 mínútur en það gerði Cosimo Chirico fyrir heimaliðið í sigrinum.
Athugasemdir
banner
banner