Fotbolti.net
07.04.15 - 11:30
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Arsenal með þrjá

Ander Herrera er í úrvalsliðinu.

Ander Herrera er í úrvalsliðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Afar góð umferð að baki fyrir Chelsea, Arsenal og Manchester United sem eru þrjú efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Einnig var þetta fín umferð fyrir tvö neðstu liðin, QPR og Leicester, sem bæði fögnuðu sjaldgæfum sigrum.
Arsenal á flesta leikmenn í úrvalsliði umferðarinnar eða þrjá talsins eftir að hafa rúllað yfir Liverpool í stórleik helgarinnar.



Markvörður: Tim Howard, Everton
Ástæðan fyrir því að Everton vann Southampton um helgina.

Hægri bakvörður: Hector Bellerin, Arsenal
Spánverjinn ungi hefur slegið í gegn á tímabilinu og skoraði ansi snoturt mark sem kom Arsenal á bragðið gegn Liverpool.

Miðvörður: Scott Dann, Crystal Palace
Fær sjaldan það hrós sem hann á skilið en hann var frábær í sigrinum gegn Manchester City.

Miðvörður: Jason Shackell, Burnley
Burnley varðist af dugnaði gegn Tottenham og nældi í markalaust jafntefli.

Vinstri bakvörður: Patrick Van Aanholt, Sunderland
Magnaður í sigrinum gegn grönnunum í Newcastle.

Varnarmiðjumaður: Esteban Cambiasso, Leicester City
Hjálpaði Leicester að næla í þrjú dýrmæt stig og rétt náði að sjá til þess að Francis Coquelin missti af sæti í úrvalsliðinu.

Miðjumaður: Cheikhou Kouyate, West Ham
Eins og skrímsli á miðjunni þegar hann er í rétta gírnum.

Miðjumaður: Ander Herrera, Manchester United
Spánverjinn geðþekki heldur áfram að sýna gæði sín og innsigla sæti sitt í liðinu. Hefur náð ótrúlega vel saman með Juan Mata.

Hægri vængur: Mesut Özil, Arsenal
Hefur fengið sinn skerf af gagnrýni en þegar hann er í stuði eru fáir betri.

Vinstri vængur: Eden Hazard, Chelsea
Á eftir að standa uppi sem leikmaður tímabilsins.

Sóknarmaður: Olivier Giroud, Arsenal
Fór hræðilega illa með vörn Liverpool í hádeginu á laugardag. Er á eldi þessa dagana og skorar að vild.

Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Giroud raðar inn mörkum.

Giroud raðar inn mörkum.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.