Brasilísku goðsögninni Ronaldinho og bróður hans hefur verið sleppt úr haldi í Paragvæ. Þetta staðfesta heimildir Goal.
Bræðurnir voru handteknir í síðasta mánuði eftir að hafa reynt að komast inn í Paragvæ með fölsuð vegabréf.
Þeir eru búnir að vera í 32 daga í fangelsi, en nú hefur dómarinn Gustavo Amarilla að þeir megi búa á hóteli á meðan þeir bíða eftir að komast í dómsal.
Ronaldinho fagnaði fertugsafmæli sínu í fangelsinu á dögunum og tók einnig þátt í fótboltamóti fyrstu helgina án frelsis.
Ronaldinho er einn hæfileikaríkasti fótboltamaður sem uppi hefur verið. Upp á sitt besta lék hann með Barcelona á Spáni.
Athugasemdir