Fotbolti.net
07.05.26 - 13:03
Kári Snorrason

Hægri hönd Ratcliffe yfirgefur United

Hægri hönd Ratcliffe yfirgefur United
Canon

Mynd: EPA

Sir Dave Brailsford hefur sagt upp störfum hjá Manchester United þar sem hann var hluti af yfirstjórn liðsins.

Brailsford hefur verið innsti koppur í búri á Old Trafford eftir yfirtöku INEOS og var talinn vera einn nánasti aðstoðarmaður Sir James Ratcliffe.
Ratcliffe réði Brailsford til United eftir að hann keypti 25% hlut í félaginu í desember 2023. Hann gengdi jafnframt stöðu yfirmanns fótboltamála í eitt ár eftir yfirtöku INEOS.

Brailsford tók þátt í að setja saman nýtt leiðtogateymi á bak við tjöldin á Old Trafford, þar á meðal að ráða Omar Berrada sem framkvæmdastjóra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.