Rashford ekki í áætlunum Man Utd - Tekur Mourinho aftur við Real? - Arsenal, Barcelona og Man City hafa áhuga á Enzo
   fim 07. maí 2026 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Orri Steinn sá fyrsti síðan 2009: Mjög stoltur af því
Mynd: Samsett
'Ég reyni auðvitað bara að skrifa mína eigin sögu, reyni bara að ná eins miklu og ég get út úr þessum stutta ferli sem maður fær'
'Ég reyni auðvitað bara að skrifa mína eigin sögu, reyni bara að ná eins miklu og ég get út úr þessum stutta ferli sem maður fær'
Mynd: Instagram/orrioskarsson
Í síðasta mánuði kom Orri Steinn Óskarsson sér í afar fámennan hóp Íslendinga sem hafa unnið bikarkeppni hjá einni af toppþjóðunum í evrópska fótboltanum. RÚV vakti athygli á. Real Socedad vann Atletico Madrid í úrslitaleik spænska konungsbikarsins 18. apríl.

Aðeins fimm íslenskir karlkyns fótboltamenn hafa unnið aðalbikarkeppni í landi (Spáni) sem talið er eitt af fimm bestu í Evrópu ásamt Englandi, Þýskalandi, Ítalíu og Frakklandi.

Sá síðasti á undan Orra var Eiður Smári Guðjohnsen sem vann spænska konungsbikarinn árið 2009 sem leikmaður Barcelona. Áður höfðu þeir Ásgeir Sigurvinsson (Bayern München, 1982),
Lárus Guðmundsson (Bayer Uerdingen,1985) og Hermann Hreiðarsson (Portsmouth, 2008) unnið sambærilegan titil.

Orri ræddi við Fótbolta.net og var spurður út í þessa staðreynd.

„Ég fékk að vita það skömmu eftir sigurinn (að ég væri fyrsti Íslendingurinn síðan 2009). Það er bara mjög skemmtilegt og gaman að geta fetað í fótspor góðs leikmanns."

„Ég er bara mjög stoltur af því og þetta er ekki eitthvað sem allir ná að upplifa á sínum ferli. Ég tek öllu sem kemur til mín og ég reyni auðvitað bara að skrifa mína eigin sögu, reyni bara að ná eins miklu og ég get út úr þessum stutta ferli sem maður fær. Ég reyni að njóta þess og bæta mig. Þetta er bara klikkað líf,"
segir Orri Steinn.
Slapp
banner
banner