Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
   sun 07. júní 2026 22:59
Atli Arason
Auburn, Alabama
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Segir Messi ekki spila varnarleik
Hákon Arnar Haraldsson, leikmaður íslenska landsliðsins.
Hákon Arnar Haraldsson, leikmaður íslenska landsliðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hákon Arnar Haraldsson, leikmaður íslenska landsliðsins, var fenginn í spjall fyrir landsliðsæfingu Íslands í Alabama í aðdraganda landsleiksins við Argentínu næstkomandi þriðjudag. Hann vonast til þess að fá að spila gegn Lionel Messi, einum besta leikmanni sögunnar, í leik liðanna á Jordan-Hare vellinum.


Ég bara vona það. Það yrði ógeðslega gaman ef hann spilar og fá að spila á móti honum. Svo auðvitað nennir hann ekki að verjast, þannig það yrði mun auðveldara fyrir okkur að sækja en mun erfiðara að verjast. Ég vona að hann byrji,“ sagði Hákon aðspurður út í Messi.

Messi var ónotaður varamaður í síðasta vináttuleik Argentínu, gegn Hondúras í Texas síðasta laugardag. Í leik sem Argentína vann 2-0. Hann er sagður enn þá glíma við vöðvameiðsli í læri. Meiðsli sem hann varð fyrir í síðasta leik Inter Miami í maí.

Lionel Scaloni, þjálfari argentíska liðsins, hafði áður sagt að Messi gæti spilað einhverjar mínútur í síðustu tveimur æfingarleikjum liðsins fyrir mót. Leikurinn gegn Íslandi er einmitt síðasti leikur Argentínu fyrir HM.

Hákon segir íslenska liðið vel undirbúið fyrir leikinn gegn Argentínu, þrátt fyrir smá þreytu eftir langt ferðalag. Það ber þó að varast ýmislegt í leik Argentínu, sem hefur marga styrkleika.

Þeir eru snöggir. Þeir keyra upp tempó-ið áður en þú veist af því, taka því rólega og eru svo allt í einu komnir [í sóknarleik]. Svo eru þeir með einstaklingsgæði og besta leikmann í heimi. Þannig þetta verður alvöru áskorun,“ sagði Hákon Arnar Haraldsson, leikmaður íslenska landsliðsins.

Viðtalið við Hákon í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner