Guðmundur: Algjör bull að spila leik án þess að fá aukaspyrnu
Auglýsing

Guðmundur Steinn skoraði seinna mark Víkings í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Steinn Hafsteinsson, fyrirliði Víkings Ólafsvíkur var gríðarlega ánægður með sigurinn gegn Íslandsmeisturum FH í kvöld.
<i>„Hún er rosalega góð. Þetta er það sem maður er í fótbolta fyrir. Við erum rosalega sáttir með daginn í dag,\"</i> sagði Guðmundur eftir leik.
Guðmundur telur að agaður varnaleikur hafi tryggt Víkingum sigurinn í kvöld.
<i>„Við vorum rosalega þéttir og agaðir í varnarvinnslunni, vinnusamir. Það sást, FH er venjulega með mjög hratt spil og tempó og ná að opna liðin en þeir náðu því ekki á móti okkur.\"</i>
Guðmundur skoraði seinna mark Víkings Ó. í kvöld en hann var einn og óvaldaður inn í vítateig FH-inga.
<i>„Bara svo klókar hreyfingar, þeir vissu ekkert hvar ég var.\"</i>
Með sigrinum í kvöld komst Víkingur Ó. upp úr fallsæti.
<i>„Það er frábært. Það er það sem við stefnum að. Við verðum að vera raunsæir, að vera úr fallsæti á þessum tímapunkti er bara gott. Það þýðir að þetta er bara í okkar höndum.\"</i>
Guðmundur og Bergsveinn Ólafsson, varnarmaður FH háðu mikla baráttu í leiknum í kvöld.
<i>„Hann er leikmaður sem spilar mikið með höndunum og er líkamlegur. Ég er alveg til í að taka það en ef þú horfir aftur á leikinn þá sérðu að ég fékk ekki eina aukaspyrnu allan leikinn. En það var dæmt á mig átta eða níu sinnum. Maður verður að fá að mæta mönnum á jafnréttisgrundvelli finnst mér. Varnarmenn komast upp með meira, sérstaklega á móti mér. Mér finnst algjört bull að spila heilan leik án þess að fá eina aukaspyrnu. En dæmt svo oft á mig.