Gary Martin skoraði tvennu er ÍBV lagði Leikni R. að velli í Lengjudeildinni í dag.
Staðan var jöfn 2-2 þegar Gary gerði þriðja mark Eyjamanna, nema að hann skoraði það með hendinni.
Hann var kominn með gult spjald fyrr í leiknum og hefði væntanlega fengið seinna gula ef dómararnir hefðu séð atvikið.
Fyrirgjöf barst til Gary frá hægri kanti og skoppaði knötturinn í gegnum sofandi vörn Leiknis. Boltinn skoppaði illa fyrir Gary sem þurfti að reka höndina út til að skora. Leiknismenn kvörtuðu sárann en dómarateymið dæmdi markið gott og gilt.
Gary bætti svo fjórða marki Eyjamanna við í uppbótartíma og er ÍBV með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir.
Hér fyrir neðan má sjá mark Gary og einnig glæsilegt mark Óskars Elíasar Zoega Óskarssonar eftir stoðsendingu frá Gary.
Hendi Guðs? @IBVsport @LeiknirRvkFC @G10bov pic.twitter.com/s3W4vf7fCP
— Stöð 2 Sport (@St2Sport) July 7, 2020
Óskar Elías Zoega með geggjað mark fyrir @IBVsport gegn @LeiknirRvkFC, leikurinn í beinni á Stöð 2 Sport þessa stundina! #lengjudeildin pic.twitter.com/X4OST8viPZ
— Stöð 2 Sport (@St2Sport) July 7, 2020
Athugasemdir