HM: Símtalið frá Trump kveikti í Belgum - Bandaríkin úr leik

Belgía er komin í 8-liða úrslit

Mynd: EPA

Matt Freese var skúrkurinn í liði Bandaríkjanna

Mynd: EPA

Allir gestgjafar mótsins eru úr leik á HM

Mynd: EPA

Belgía er komin í 8-liða úrslit

Mynd: EPA
Bandaríkin 1 - 4 Belgía
0-1 Charles De Ketelaere ('9 )
1-1 Malik Tillman ('31 )
1-2 Charles De Ketelaere ('33 )
1-3 Hans Vanaken ('57 )
1-4 Romelu Lukaku ('90 )
0-1 Charles De Ketelaere ('9 )
1-1 Malik Tillman ('31 )
1-2 Charles De Ketelaere ('33 )
1-3 Hans Vanaken ('57 )
1-4 Romelu Lukaku ('90 )
Belgía tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins með öruggum 4-1 sigri á Bandaríkjunum á Lumen-leikvanginum í Seattle í Washington-ríki í nótt.
Leikurinn hafði verið mikið til umræðu fyrir fram, en af röngum ástæðum. Folarin Balogun fékk að spila þrátt fyrir að hafa fengið rautt spjald í síðasta leik Bandaríkjanna.
Eitt símtal frá Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, var nóg til að sannfæra Gianni Infantino, forseta FIFA, um að gefa Balogun skilorðsbundið leikbann.
Belgar voru eðlilega ósáttir við málið og virtust nýta reiðina á vellinum. Þeir byrjuðu af miklum krafti og herjuðu á mark Bandaríkjanna strax á fyrstu mínútunum.
Belgía komst yfir eftir aðeins níu mínútur. Nicolas Raskin fékk þá boltann í teignum eftir slaka hreinsun heimamanna, kom honum frá vinstri og fyrir markið á Charles De Ketelaere, sem gat varla annað en sett boltann í netið.
Belgar héldu áfram að pressa, en Bandaríkjamenn náðu að halda sér inni í leiknum og jöfnuðu nokkrum mínútum eftir fyrri vatnspásuna.
Heimamenn fengu aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn og Malik Tillman stýrði boltanum í vegginn og framhjá Thibaut Courtois í marki Belga. Heppnisstimpill var yfir markinu, en Bandaríkjamenn kvörtuðu ekki og staðan orðin jöfn.
Gleðin entist þó ekki lengi. Rúmri mínútu síðar drógu Belgar heimamenn aftur niður á jörðina. Leandro Trossard fékk boltann á vinstri vængnum og lyfti honum inn á miðjan teiginn þar sem De Ketelaere var mættur og stangaði boltann af krafti upp í hægra hornið.
Dodi Lukebakio gat aukið forystuna undir lok fyrri hálfleiks, en hann skallaði aukaspyrnu Maxim De Cuyper framhjá markinu.
Staðan var 2-1 fyrir Belgíu í hálfleik. Bandaríkjamenn byrjuðu síðari hálfleikinn ágætlega og voru komnir með smá skriðþunga þegar Matthew Freese, markvörður liðsins, gerði skelfileg mistök sem reyndust dýrkeypt.
Boltanum var sparkað úr vörn Belga og inn fyrir á De Ketelaere, sem var að leita að þrennunni. Freese kom út á móti og vann boltann, en hikaði í hreinsuninni og tapaði honum til Hans Vanaken.
Vanaken lagði boltann í átt að hægra horninu og Tim Ream átti möguleika á að bjarga á línu. Hann reyndi að setja hælinn í boltann en hitti ekki og boltinn rúllaði í netið.
Bandaríkjamenn héldu samt áfram að reyna og Balogun komst í frábært færi til að minnka muninn þegar hann slapp í gegn vinstra megin. Courtois varði hins vegar vel upp við nærstöngina og sá til þess að heimamenn kæmust ekki aftur inn í leikinn.
Belgar komust einnig í fínar stöður á lokakaflanum, en varnarmenn Bandaríkjanna voru duglegir að kasta sér fyrir boltann. Þeir gátu þó ekkert gert þegar enn ein mistök heimamanna leiddu til fjórða marksins.
Chris Richards átti þá hræðilega sendingu hægra megin í eigin teig, Romelu Lukaku náði boltanum og þrumaði honum í fjærhornið. Þetta var 93. landsliðsmark Lukaku og hann fagnaði því innilega.
Fleiri urðu mörkin ekki í Seattle og Belgar fögnuðu sanngjörnum sigri. Belgía mætir Evrópumeisturum Spánar í 8-liða úrslitum, en Bandaríkjamenn eru úr leik.