Steven Gerrard, knattspyrnustjóri Rangers í Skotlandi, segir að Alfredo Morales, framherji liðsins, láti utanaðkomandi hluti hafa áhrif á sig en hann hefur verið orðaður við franska liðið Lille.
Morales hefur verið sterklega orðaður við Lille en félagið hefur sýnt honum mikinn áhuga á síðustu dögum. Morales átti slæman leik er Rangers tapaði fyrir Bayer Leverkusen í gær en Gerrard er ekki viss hvað verður um Morales.
„Ég veit það ekki. Ég get ekki stýrt því hvað gerist utan félagsins en það vita allir að það hafa utanaðkomandi aðilar haft áhrif á hann. Það er ekki hægt að neita því," sagði Gerrard.
„Við horfum bara fram á veginn. Einbeiting mín er á liðinu og þá leikmenn sem vilja vera hér og einbeiting mín er á næsta leik gegn St. Mirren."
„Ef það kemur tilboð sem stjórninni líst vel á og hafa áhuga á að samþykkja auk þess að leikmaðurinn segir mér að hann vilji fara þá munum við sjá hvað gerist," sagði hann í lokin.
Athugasemdir