Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 07. ágúst 2022 17:43
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Hilmir skoraði tvívegis fyrir Venezia í bikarnum
Hilmir Rafn Mikaelsson skoraði tvö fyrir Venezia
Hilmir Rafn Mikaelsson skoraði tvö fyrir Venezia
Mynd: Venezia
Unglingalandsliðsmaðurinn Hilmir Rafn Mikaelsson skoraði tvö mörk í 3-2 tapi Venezia gegn Ascoli er liðin mættust í ítalska bikarnum en liðið er úr leik þrátt fyrir magnaða frammistöðu hans.

Hilmir Rafn er á láni hjá Venezia frá Fjölni en hann kom af bekknum í dag. Bjarki Steinn Bjarkason var í byrjunarliði Venezia en fór ar velli á 65. mínútu. Kristófer Jónsson kom einnig af bekknum á sama tíma og Hilmir eða á 57. mínútu.

Venezia var tveimur mörkum undir þegar lítið var eftir en Hilmir gerði fyrsta mark sitt á 88. mínútu er hann fékk boltann fyrir framan mark Ascoli og kláraði af mikilli yfirvegun.

Innan við mínútu síðar jafnaði hann metin og var að tryggja Venezia í mögulega framlengingu. Ascoli tókst hins vegar að skora sigurmark í uppbótartíma en engu að síður frábær frammistaða hjá íslenska leikmanninum. Bæði mörk hans má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu fyrra mark Hilmis
Sjáðu síðara markið hér
Athugasemdir
banner