07.08.26 - 20:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Alli Jói: Vil að þær átti sig á því að þær eru betri í fótbolta
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fótbolti.net ræddi við Aðalstein Jóhann Friðriksson, þjálfara Þórs/KA, eftir sigur liðsins á Fram í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór/KA 2 - 0 Fram
„Þetta var allt í lagi fyrri hálfleikur. Við gerðum hluti ágætlega en það vantaði upp á gæði, ákvarðanatöku og vilja til að taka yfir í fyrri hálfleik. Mér fannst við taka yfir í seinni hálfleik og vinna verðskuldað," sagði Alli Jói.
Þór/KA sýndi sterkan varnarleik í kvöld.
„Það er ekki spurning. Það eru prinsipp í varnarleik sem okkur eru gríðarlega mikilvæg núna sérstaklega þegar við erum að snúa þessu við. Það er partur af þessu að verja markið okkar og þá þurfum við að skora jafn mikið," sagði Alli Jói.
„Mig langar rosalega mikið að stelpurnar fái meira sjálfstraust og átta sig á því að þær eru betri í fótbolta og geti spilað góðan fótbolta og skorað mörk. Með því að halda hreinu vona ég að það verði smám saman meira sjálfstraust til að við getum látið það telja meira hinu megin."
Hin 17 ára gamla Karen Hulda Hrafnsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið þegar hún kom Þór/KA yfir.
„Var þetta hennar fyrsta? Það er frábært. Karen er búin að koma frábærlega inn í þetta hjá okkur. Ef þetta var hennar fyrsta sem er örugglega rétt hjá þér þá er það frábært. Þá er hún leikmaður númer 12 eða 13 sem skorar. Þetta er rosalega mikið lið hjá okkur og það er til fyrirmyndar."