Fotbolti.net
07.08.26 - 20:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Anton Ingi: Eins og sigurinn væri í höfn eftir að hafa unnið fjóra leiki

Auglýsing
Anton Ingi: Eins og sigurinn væri í höfn eftir að hafa unnið fjóra leiki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Fótbolti.net ræddi við Anton Inga Rúnarsson, þjálfara Fram, eftir tap liðsins gegn Þór/KA í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór/KA 2 - 0 Fram
„Þetta var svolítið bragðdaufur leikur. Við vorum töluvert meira með boltann en sköpuðum okkur ekki neitt. Þær fengu þessi 2-3 vín færi og nýttu þau og refsuðu okkur vel," sagði Anton Ingi.

Hlín Heiðarsdóttir kom inn á sem varamaður eftir klukkutíma og færði Fram liðinu mikinn kraft.

„Hlín kom virkilega sterk inn. Kom með kraft og það var það sem okkur vantaði í fyrri hálfleiknum. Það var smá andleysi eins og þetta væri sigur í höfn eftir að hafa unnið fjóra leiki. Við þurfum að ná okkur aðeins niður í því að sjá að það er nóg eftir. Stutt á milli í efri og neðri hlutanum. Við þurfum að endurstilla okkur aðeins."

Fram stefnir á að enda í efri hlutanum en liðið er í 6. sæti aðeins stigi á undan Þór/KA eftir leik kvöldsins.

„Við erum þar ennþá eftir umferðina. Við erum ennþá með þetta í okkar höndum en það er stutt að detta úr því ef fólk dettur í smá kæruleysi og halda að þetta sé gefins."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.