Fotbolti.net
07.08.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Bayern fær sjö milljónir punda fyrir Irankunda

Bayern fær sjö milljónir punda fyrir Irankunda
Canon

Mynd: EPA

Þýskalandsmeistarar Bayern München munu á næstu dögum fá sjö milljónir punda í vasa sinn þegar Nestory Irankunda gengur í raðir Sporting frá Watford.
Sporting hefur náð samkomulagi við Watford um kaup á Irankunda fyrir um 17 milljónir punda.

Portúgalska félagið bauð 13 milljónir punda fyrr í vikunni en Watford tókst að hækka kaupverðið um fjórar milljónir áður en félögin handsöluðu samkomulagið.

Irankunda er tvítugur landsliðsmaður Ástralíu sem vakti athygli fyrir frammistöðu sína á heimsmeistaramótinu í sumar. Hann kom til Watford frá Bayern München árið 2024 en þýska félagið tryggði sér þá 50 prósenta hlut af næstu sölu.

Watford ræddi við Bayern á dögunum og tókst að lækka hlut Bæjara niður í 40 prósent. Bayern fær því tæpar sjö milljónir punda þegar félagaskiptin ganga í gegn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.