Fotbolti.net
07.08.26 - 21:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deild kvenna: Valur hafði betur í botnslagnum

Emma Hawkins

Emma Hawkins

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Valur 1 - 0 Víkingur R.
1-0 Emma Hawkins ('5 )
Lestu um leikinn

Valur vann Víking á Hlíðarenda í Bestu deild kvenna í kvöld.

Valskonur náðu forystunni snemma leiks. Saana Emilia Tuomala missti boltann við vítateig Víkings og Arnfríður Auður Arnarsdóttir náði boltanum. Hún sendi Emmu Hawkins í gegn og hún skoraði.
Emma var nálægt því að skalla boltann í eigið net eftir tæplega hálftíma leik eftir hornspyrnu. Bergdís Sveinsdóttir skaut síðan rétt yfir úr aukaspyrnu.

Þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma var Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir hársbreidd frá því að innsigla sigur Vals en hún skaut í slána.

Það kom ekki að sök fyrir Valskonur sem fóru með sigur af hólmi. Valur fór upp fyrir Víking í 9. sæti með 13 stig en Víkingur er á botninum með 11 stig.

Besta deild kvenna: Valur hafði betur í botnslagnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta kvenna

#LiðLmunStig
1Breiðablik18+2537
2FH18+2437
3ÍBV18-327
4Stjarnan18+426
5Þróttur R.18-323
6Grindavík/Njarðvík18-822
7Fram18-1522
8Valur18-920
9Víkingur R.18-1120
10Þór/KA18-419
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.