Fotbolti.net
07.08.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Camavinga vill ekki fara frá Real Madrid

Camavinga vill ekki fara frá Real Madrid
Canon

Mynd: EPA

Eduardo Camavinga ætlar ekki að yfirgefa Real Madrid í sumar og er staðráðinn í að berjast fyrir sæti sínu í liðinu á komandi tímabili. Þetta segir Djamel, sem er vel að sér þegar það kemur að fréttum um franska landsliðsmenn og leikmenn í frönsku deildinni.
Real Madrid vill losa Camavinga í sumar til að skapa pláss fyrir Rodri sem félagið ætlaði að sækja frá Manchester City.

Djamel segir Camavinga hins vegar staðráðinn í að vera áfram í Madríd. Þá virðist Rodri hafa snúist hugur og er nú sagður á leið til erkifjendanna í Barcelona.

Manchester United er meðal þeirra félaga sem hafa skoðað möguleikann á að fá Camavinga. Eins og staðan er núna eru þó litlar líkur á að af þeim félagaskiptum verði.

Djamel segir jafnframt að Real Madrid vilji alls ekki missa Aurelien Tchouameni sem hefur einnig verið orðaður við brottför.

Tchouameni er mikilvægur hluti af áætlunum Jose Mourinho sem tók við Real Madrid í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.