Fotbolti.net
07.08.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Diaby á leið aftur til Leverkusen

Diaby á leið aftur til Leverkusen
Canon

Mynd: EPA

Franski vængmaðurinn Moussa Diaby er að snúa aftur í Evrópuboltann eftir að hafa eytt síðustu tveimur árum hjá Al Ittihad í Sádi-Arabíu.
Diaby er 27 ára gamall en ákvörðun hans um að halda til Sádi-Arabíu á hátindi ferilsins kom mörgum á óvart.

Hann er uppalinn hjá Paris Saint-Germain en sló í gegn með Bayer Leverkusen þar sem hann lék frá 2019 til 2023.

Aston Villa keypti Diaby á metfé og stóð hann sig vel á eina tímabili sínu hjá félaginu. Aðeins 25 ára gamall ákvað hann þó að taka gylliboði frá Al Ittihad.

Eftir tvö ár þar er Diaby nú á leið aftur í Evrópuboltann. Bild greinir frá því að hann sé að snúa aftur til Leverkusen fyrir rúmlega 30 milljónir evra.

Frakkinn mun skrifa undir fimm ára samning og fá um sex milljónir evra í árslaun.

Diaby hefur leikið ellefu landsleiki fyrir Frakkland og var meðal annars í hópnum sem vann Þjóðadeildina árið 2021.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.