Fotbolti.net
07.08.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Subway

England um helgina - Andri Lucas og Benoný í eldlínunni

Andri Lucas verður í liði Blackburn sem mætir Burton

Andri Lucas verður í liði Blackburn sem mætir Burton

Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Fyrsta umferð enska deildabikarsins er í fullum gangi og verða tveir Íslendingar í eldlínunni um helgina.
Wolves spilar sinn fyrsta leik á tímabilinu í kvöld en liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor. Mótherjinn er Port Vale sem vakti athygli fyrir gott gengi í enska bikarnum á síðustu leiktíð.

Hollywood-lið Wrexham heimsækir Middlesbrough í viðureign tveggja liða úr B-deildinni.

Andri Lucas Guðjohnsen og félagar hans í Blackburn mæta Burton á morgun. Burton er í eigu Íslendinga en Andri er kominn á fullt á ný eftir að hafa glímt við meiðsli undir lok síðustu leiktíðar.

Benoný Breki Andrésson verður væntanlega í leikmannahópi Stockport County sem tekur á móti Doncaster Rovers.

West Ham mætir Portsmouth og Burnley leikur gegn Notts County.

Átta úrvalsdeildarfélög koma inn í keppnina í annarri umferð en dregið verður á mánudag. Brentford, Chelsea, Everton, Fulham, Leeds, Newcastle, Nottingham Forest og Tottenham verða þá öll í pottinum.

Föstudagur:
18:45 Wolves - Port Vale
18:45 Wycombe - Stevenage
19:00 Middlesbrough - Wrexham

Laugardagur:
12:00 Cambridge United - Barnet
13:00 QPR - Millwall
14:00 Wimbledon - Newport
14:00 Barnsley - Wigan
14:00 Bradford - Rochdale
14:00 Bristol R. - Peterboro
14:00 Bromley - Reading
14:00 Burnley - Notts County
14:00 Burton - Blackburn
14:00 Cardiff City - Swindon Town
14:00 Crewe - Accrington Stanley
14:00 Derby County - Lincoln City
14:00 Fleetwood Town - Chesterfield
14:00 Gillingham - Luton
14:00 Grimsby - Blackpool
14:00 Leicester - Northampton
14:00 Leyton Orient - Oxford United
14:00 Norwich - MK Dons
14:00 Preston NE - Huddersfield
14:00 Salford City - Shrewsbury
14:00 Sheff Wed - Bolton
14:00 Stockport - Doncaster Rovers
14:00 Stoke City - Oldham Athletic
14:00 Swansea - Birmingham
14:00 Watford - Crawley Town
14:00 West Ham - Portsmouth
16:30 Cheltenham Town - Charlton Athletic
16:30 Colchester - Southampton
16:30 Rotherham - West Brom

Sunnudagur:
15:00 Mansfield Town - Sheffield Utd
Benoný Breki og félagar í Stockport County mæta Doncaster

Benoný Breki og félagar í Stockport County mæta Doncaster

Canon

Mynd: Stockport

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.