Fotbolti.net
07.08.26 - 22:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jón Óli: Frammistaða vissra leikmanna algjörlega óásættanleg

Auglýsing
Jón Óli Daníelsson, þjálfari ÍBV.

Jón Óli Daníelsson, þjálfari ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
„Tilfinningin er ekki eins slæm og hún var í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var mjög góður af okkar hálfu, Eyjahjarta eins og við viljum hafa þetta," sagði Jón Óli Daníelsson, þjálfari ÍBV, eftir 4-2 tap gegn Grindavík/Njarðvík í Bestu deild kvenna í kvöld.
ÍBV komst snemma 1-0 yfir en svo tók Grindavík/Njarðvík öll völd á vellinum og komst í 4-1. Jón Óli ákvað að gera fjórfalda skiptingu áður en fyrri hálfleikurinn var á enda, ekki sáttur með stöðu mála.

„Frammistaða vissra leikmanna var algjörlega óásættanleg og þess vegna gerði ég fjórfalda skiptingu. Hún átti að koma fyrr en boltinn fór bara ekki úr leik," sagði Jón Óli.

Maður sér ekki oft fjórfalda skiptingu í fyrri hálfleik.

„Nei, en eflaust mætti þetta gerast oftar. Ég sé enga ástæðu til að vera að bíða með hlutina. Leikmenn sem eru inn á vellinum og eru ekki að eiga sinn dag, maður er ekki að gera þeim greiða með því að hafa þær lengur inn á. Það er langbest að gera þetta bara strax því það eru leikmenn sem eru á bekknum sem dreymir um að koma inn á og sanna sig."

Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.