07.08.26 - 08:20
Elvar Geir Magnússon
Juve vill Zirkzee - Liverpool ekki að reyna við Spence

Joshua Zirkzee.

Mynd: EPA

Djed Spence í leik með Englandi á HM.

Mynd: EPA

Kaua Elias.

Mynd: EPA

Joshua Zirkzee.

Mynd: EPA

Arsenal, Manchester United og Liverpool koma öll við sögu í slúðurpakkanum þennan föstudaginn. Það er heldur betur farið að styttast í að enska úrvalsdeildin fari af stað!
Atletico Madrid er enn líklegast til að fá argentínska varnarmanninn Cristian Romero (28) frá Tottenham, þrátt fyrir áhuga frá erkifjendunum í Arsenal. Tottenham vill ekki selja Romero til Arsenal en félagið hefur rætt við umboðsmenn leikmannsins. (Mail)
Juventus er að reyna að fá hollenska framherjann Joshua Zirkzee (25) frá Manchester United, Ítalska félagið vill fá hann lánaðan án skyldu um kaup. (Gazzetta dello Sport)
Liverpool hefur engar áætlanir um að reyna að fá enska bakvörðinn Djed Spence (25) frá Tottenham í sumar þrátt fyrir meiðslavandræði. (Mirror)
Baráttan um Rodri (30) harðnar en spænski miðjumaðurinn hefur gefið það út að hans vilji sé að ganga í raðir Barcelona frá Manchester City. (Marca)
Arsenal og Manchester United sendu njósnara til að fylgjast með brasilíska sóknarmanninum Kaua Elias (20) þegar hann skoraði þrennu í æfingaleik með Shaktar Donetsk. AC Milan og Porto hafa einnig áhuga á leikmanninum. (Sun)
Liverpool hefur lagt meiri áherslu á viðræður við senegalska kantmanninn Ibrahim Mbaye (18) eftir að táningurinn lét það skýrt í ljós að hann vilji yfirgefa Paris St-Germain. (Teamtalk)
Viðræður milli West Ham og Tottenham um ísraelska kantmanninn Manor Solomon (27) hafa siglt í strand af fjárhagslegum ástæðum. West Ham er ekki tilbúið að samþykkja bónusgreiðslurnar sem Tottenham vill ef Hamrarnir komast aftur upp. (Athletic)
Ipswich og Everton eru meðal félaga sem vonast til að lokka til sín senegalska landsliðsmanninn fjölhæfa Krepin Diatta (27). Hann er samningslaus eftir að samningur hans við Mónakó rann út í júní. (Footmercato)
Ipswich er komið vel á veg í viðræðum um að kaupa serbneska miðjumanninn Sasa Lukic (29) alfarið frá Fulham. (Sky Sports)
Galatasaray vill fá brasilíska framherjann Gabriel Martinelli (25) frá Arsenal. (Gianlucadimarzio)
Sunderland er í lykilstöðu til að fá mósambíska kantmanninn Geny Catamo (25) frá Sporting Lissabon. Aston Villa, Brentford og Everton eru meðal áhugasamra félaga. (TeamTalk)