07.08.26 - 20:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Karen Hulda: Geggjað að Arna Sif hafi lagt upp markið
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór/KA lagði Fram af velli í Bestu deild kvenna í kvöld. Fótbolti.net ræddi við hina 17 ára gömlu Karen Huldu Hrafnsdóttir sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir Þór/KA.
„Mér fannst við byrja slaka en við komum mjög ákveðnar í seinni hálfleikinn. Þegar ég skoraði var það bara upp og áfram," sagði Karen Hulda.
Arna Sif Ásgrímsdóttir, sem spilar með Karen í miðverðinum, lagði upp markið í sínum 300. leik.
„Þetta var mjög góð tilfinning. Arna lagði upp markið sem var geggjað," sagði Karen Hulda.
Þór/KA er aðeins stigi frá efri hlutanum eftir sigurinn í kvöld.
„Það er bara að reyna vinna alla leiki til að reyna fá sem flest stig. Hver leikur skiptir máli," sagði Karen Hulda.